Njótum sumarsins

Um leið og sólargeislarnir brjóta sér leið í gegnum þetta hren sem hefur háð okur undanfarið þá er grillið rifið út, tjaldvagninn sendur í skoðun, börnunum hennt út á trampólínið og golfsettið standsett. 

Við fyrirgefum veðrinu á svipstundu og föðurlandsástin heltekur fyrra „pirrið“,

en þá kemur stóra spurningin, hvernig eigum við að njóta sumarsins til þess ýtrasta ?

Það fer vissulega eftir því hvað fólki finnst gaman að gera svona almennt, en hins vegar verð ég að benda á nokkra hluti: 

  1. Sumarið er alltaf mun fljótara að líða heldur en gert er ráð fyrir
  2. Sumarið svíkur stundum með rigningu og veseni
  3. Aftur, sumarið er alltaf mun fljótara að líða heldur en gert er ráð fyrir

Til þess að komast hjá því að missa af sumrinu langar mig að benda á eina skothelda lausn og hún er að gera áætlun! Margur mun eflaust ekki nenna að gera áætlun og telja það tilgangslaust en það mun í alvöru bjarga sumrinu. 

Setjast niður með makanum og uppáhalds vinafólkinu, opna dagatal og samræma sumarfríin, merkja inn ferðahelgar, utanlandsferðir, golf- og veiðihelgar og þar fram eftir götunum. Það mun koma þér merkilega á óvart hvað eru fáar helgar í sumrinu og mögulega mun ekki gefast tími í allt. 

Ég óska þér kæri lesandi gleðilegs sumars og vona að þú njótir. 

\"\"

** Snædís **