Njóta allir sjúklingar sömu þjónustu?

Ég hef velt því fyrir mér hvort þjónusta við sjúklinga sé misjöfn eftir því hvaða sjúkdóma þeir greinast með. Allir geta sammælst um að mikilvægt sé að draga úr fylgikvillum sjúkdóma með öflugri meðferð og reglulegu eftirliti. Meðferðarúrræði þurfa að vera fyrir hendi og aðgengileg þeim sem á þurfa að halda. En er það svo í raun og veru?


Sumar heilsugæslustöðvar hafa tekið upp skipulagða þjónustu við þá sem greinast með sykursýki, svokallaða sykursýkismóttöku, þar sem markmiðið er að taka fljótt og vel á vandanum. Væri hægt að heimfæra það fyrirkomulag yfir á aðra sjúkdóma og þjónusta betur þá sem leita til læknis? Samkvæmt könnunum eru allt upp í einn af hverjum þremur sem koma á heilsugæsluna með erindi sem tengist depurð eða tilfinningavanda. Hvernig stendur heilbrigðiskerfið sig í því að þjónusta fólk sem glímir við þunglyndi eða kvíða?


Lestu pistilinn í heild sinni hér: