Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, segir í samtali við RÚV það vera leiðinlegt og sorglegt að hafa brugðist því fólki sem hafi stutt flugfélagið og haft trú á því. Hann segir það ekki rétt að 300 milljóna króna skuld til Air Lease Corporation, stærsta leigusala flugfélagsins, hafi verið á gjalddaga í gærkvöldi og að það hafi gert útslagið fyrir fyrirtækið, líkt og Fréttablaðið greindi frá.
Skúli segir í samtalinu við RÚV að rætt hafi verið við marga aðila allt fram undir morgun en að það hafi því miður ekki heppnast, tíminn hafi einfaldlega ekki verið nægilega langur. „Við vorum að vinna í alla nótt með fleiri en einum aðila,“ segir hann en vill ekki tjá sig um það hverjir það voru.
Í nótt voru flugvélar WOW kyrrsettar og í morgun var tilkynnt um að flugfélagið hafi hætt allri starfsemi. Skúli segir ekkert eitt hafa leitt til þess að vélarnar voru kyrrsettar í nótt. „Þetta er svolítið þannig að eitt leiðir af öðru þannig að þegar einn byrjar þá fellur þetta hratt. Það var ekkert eitt umfram annað og menn voru orðnir óþreyjufullir að sjá okkur klára fjármögnunina.“
Skúli hugðist ekki ætla að gefast upp en þurfti að lokum að játa sig sigraðan. „Ég var nú eiginlega bara njörvaður niður í það sæti að sætta mig við staðreynd málsins. Auðvitað er þetta búið að vera mikil barátta en ég er líka óheyrilega þakklátur fyir þann mikla stuðning og hvatningu sem ég hef fengið um það að halda áfram og gefast ekki upp.“
Sérstök afsláttarfargjöld Icelandair
WOW air getur ekki aðstoðað fólkið sem hefur keypt flugmiða hjá flugfélaginu þar sem allri starfsemi hefur verið hætt, en Icelandair hefur tilkynnt að flugfélagið hafi nú þegar virkjað viðbragðsáætlun þar sem það mun bjóða sérstök afsláttarfargjöld á almennu farrými til og frá ákveðnum áfangastöðum í Evrópu og Bandaríkjunum.
Þessi fargjöld munu verða í boði næstu tvær vikurnar fyrir farþega sem áttu bókað með WOW frá 28. mars til 11. apríl. Í tilkynningunni segir að farþegar geti haft samband við Icelandair í gegnum síma eða samfélagsmiðla og þurfa að framvísa WOW air flugmiða við bókun.