Níu upplýsingafulltrúar hjá Reykjavíkurborg - Gunnar Smári sakar borgina um elítustjórnmál

„Þetta er hluti kostnaðar við elítustjórnmál, stjórnmál sem eru í veikum tengslum við almenning. Hlutverk upplýsingafulltrúa er meira og minna að sannfæra almenning um að aðgerðir sem fólk bað ekki um sé í raun það sem það þarf á að halda og það sem fólk bað um sé bara vitleysa,“ segir Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistaflokks Íslands.

Tilefni skrifa Gunnars Smára er frétt Kjarnansum að níu upplýsingafulltrúar starfi hjá Reykjavíkurborg. Árlegur launakostnaður þeirra er um 102 milljónir króna á ári samkvæmt svari borgarinnar.

Gunnar Smári segir að það færi betur á því að upplýsingafulltrúarnir væru í vinnu á almennilegum ritstjórnum og myndu skoða aðgerðir stjórnvalda frá sjónarhorni almennings.

„Með því að flytja 10 upplýsingafulltrúa Reykjavíkurborgar og aðra 10 frá stærri sveitarfélögum plús líklega 50 á vegum ríkisins (ætli ráðherrarnir séu ekki með um 25-30 manns á sínum vegum til að skrifa um sig lofgjörð?) mætti stórefla Ríkisútvarpið og/eða aðra fjölmiðla og stórbæta þar með upplýsingastreymi í samfélaginu,“ segir hann á Facebook.

Þegar hann hafi byrjað í blaðamennsku fyrir tæpum 40 árum hafi verið um 150 blaðamenn á Íslandi og einn upplýsingafulltrúi. „Nú eru eitthvað færri blaðamenn starfandi, kannski 130, en upplýsingafulltrúar eru orðnir eitthvað um 900,“ segir Gunnar Smári. „Og þeir menga allt upplýsingaflæði í samfélaginu, valda því að það sem þú heyrir og sérð er meira og minna skilaboð frá valdinu og auðnum. Blaðamenn, sem ætíð þurfa að taka stöðu með almenningi, horfa á heiminn frá sjónarhóli venjulegs fólks, hafa orðið undir upplýsingaóreiðu upplýsingafulltrúa stjórnvalda, félagasamtaka og fyrirtækja.“