Níu manns, konur og börn, dvöldu í Kvennaathvarfinu yfir jólin.
Frá þessu greinir Fréttablaðið.
Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir að mun fleiri konur hafi leitað í athvarfið árið 2015 en árið áður. Hún skýrir það að nokkru með aukinni umræðu og átaki gegn ofbeldi. 120 konur hafa leitað sér skjóls í ár en þær væru 100 allt árið í fyrra,
„Með nýju verklagi lögreglunnar á að fækka þeim tilvikum þar sem konur koma á náttkjólnum úr miðju ofbeldisatviki. Það er algengt að við lesum í fjölmiðlum um fimm útköll vegna heimilisofbeldis þá nóttina en ekkert þeirra kom til okkar. Þær sem eru beittar ofbeldi á nýársnótt skila sér svo kannski tuttugasta janúar,“ segir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins í Fréttablaðinu.
Fjárframlag til Kvennaathvarfsins hækkaði um fimm milljónir á fjárlögum og verður 70,6 milljónir króna á árinu.
Þá fékk Aflið á Norðurlandi sem einnig berst gegn ofbeldi og styður þolendur 10 milljóna króna aukafjárveitingu sem sögð er hafa mikið að segja.