Forsætisráðherrar Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna og Bretlands koma saman í Reykjavík nú í vikunni, í boði Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra.
Leiðtogarnir munu taka þátt í sameiginlegu málþingi þjóðanna, Northern Future Forum, þar sem rætt verður um vöxt og viðgang skapandi greina og nýsköpun í opinberum rekstri í þeim tilgangi að auka gæði opinberrar þjónustu.
Ásamt forsætisráðherrunum níu munu ríflega 80 sérfræðingar frá Íslandi, Danmörku, Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð og Bretlandi taka þátt í umræðu og skoðanaskiptum. Meðal íslensku sérfræðinganna eru Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, Ingi Rafn Sigurðsson, forstjóri Karolina Fund, Vala Halldórsdóttir, tekjustjóri Plain Vanilla, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri á Landspítalanum, og Ingi Steinar Ingason, verkefnastjóri hjá embætti Landlæknis.
Þeir sem stýra munu umræðunum á fundinum eru Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, Kristján Leósson, framkvæmdastjóri Efnis-, líf- og orkutæknisviðs Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Hilmar Bragi Janusson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Halla Tómasdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Sisters Capital, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Guðfinna S. Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri LEAD Consulting, Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins, Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, og Dóra Ísleifsdóttir; prófessor við Listaháskóla Íslands.