Búðirnar 10-11, Bónus, Iceland, Krónan, Nettó, Plúsmarkaðurinn, Samkaup og Vietnam Market hafa allar verið sektaðar fyrir að hlíta ekki fyrirmælum Neytendastofu um bættar verðmerkingar.
Sekt þessara fyrirtækja nemur samanlagt rúmum sex milljónum króna.
Þetta kemur fram í upplýsingum frá Neytendastofu í dag en í verðmerkingareftirliti Neytendastofu í matvöruverslunum er kannað hvort vörur séu verðmerktar bæði með söluverði og með einingarverði, auk þess sem farið er yfir hvort verð á hillu sé rétt. Þá er skoðað sérstaklega hvernig verðmerkingum með notkun verðskanna er háttað.
Neytendastofa gerði athugasemdir við verðmerkingar í flestum þeirra matvöruverslana sem skoðaðar voru og þegar skoðuninni var fylgt eftir höfðu 19 verslanir, í eigu sjö fyrirtækja, ekki enn gert fullnægjandi umbætur á verðmerkingum.
Í flestum verslunum voru gerðar athugasemdir við fjölda ómerktra eða vitlaust verðmerktra vara en einnig höfðu athugasemdir verið gerðar við að einingaverð vantaði í nokkrum verslunum.
Skylda til að verðmerkja söluvörur með söluverði og einingarverði er mjög skýr og því hefur Neytendastofa nú gripið til þess að leggja stjórnvaldssekt á þau sex fyrirtæki sem ekki höfðu lagað verðmerkingar sínar, að því er kemur fram í tilkynningu frá Neytendastofu.