Nisreen Suleymani, sýrlensk kona, settist að ásamt eiginmanni sínum og tveimur sonum á Blönduósi í síðustu viku. Fjölskyldan er í hópi kvótaflóttafólks, alls 75 Sýrlendinga, sem var boðið hingað til lands af íslenskum stjórnvöldum.
Samkvæmt flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna eru um 15 millljónir á flótta í heiminum. Að vera á meðal þeirra 75 sem voru handvalin af íslenskri sendinefnd til þess að fá að setjast að hér á landi er því gífurleg lukka að mati Nisreen. „Fyrir okkur var þetta sem happdrættisvinningur,“ segir hún í samtali við RÚV í gær. „Þannig líður mér, við fáum tækifæri til að hefja nýtt líf.“
Fjölskyldunni líst vel á nýja heimilið. „Hér á Blönduósi er mjög notalegt og umhverfið fallegt. Fólkið er afar indælt og elskulegt og nýja heimilið mjög fallegt.“
„Skynjum kærleikann í augum þeirra“
Nisreen og fjölskylda hennar neyddist til að flýja Sýrland vegna stríðsins sem þar geisar og dvaldi fjölskyldan í flóttamannabúðum í Líbanon til fjölda ára. Nisreen segir fjölskylduna hafa mætt fordómum í báðum löndum. „Við mættum miklum fordómum vegna uppruna okkar, í alvöru talað. Bæði í Sýrlandi og Líbanon. Við urðum fyrir miklum fordómum í Sýrlandi þar sem við erum Kúrdar en aðeins minni í Líbanon fyrir að vera frá Sýrlandi.“
Hún segir fjölskylduna ekki verða fyrir fordómum á Blönduósi, þvert á móti hafi móttökurnar verið hlýlegar. „Hér er ekkert slíkt, allir sem við hittum heilsa okkur glaðlega. Við skiljum þau kannski ekki og þau ekki okkur en við skynjum kærleikann í augum þeirra. Til dæmis eignuðust synir mínir strax vini. Eftir aðeins tvo daga var farið að banka upp á of spyrja eftir þeim. Við vonumst til að eignast hér gott líf.“