Nína í áfalli: „það hafði einhver skotið hann með haglabyssu“ - leitar að manninum sem skaut köttinn

„Hér er elsku kisinn okkar þegar hann var kominn í innlögn til dýralæknis. Hann hafði verið haltur, en líka hættur að borða og drekka. Það sem kom í ljós sem ástæða fyrir því hvað honum leið illa, var að það hafði einhver skotið hann með haglabyssu.“

 Þetta segir Nína Þórsdóttir á færslu á Facebook. Nína fór með höglin til sérfræðings og var niðurstaðan að þessi tegund af höglum væri helst notuð af meindýraeyðum. Með færslu sinni birtir hún svo röntgenmyndir sem teknar voru af dýrinu þar sem höglin sjást greinilega. Enn eru högl í kettinum en dýralækni tókst ekki að ná þeim öllum.

„Eftir að hafa fengið sérfræðinga til að skoða höglin sem dýralæknirinn náði úr honum í vikunni, bendir allt til þess að þau hafi komið úr haglabyssu sem sé helst notuð af meindýraeyðum á mýs og rottur. Höglin eru minni en þau sem eru notuð á gæsaveiðar. Það var hægt að ná höglunum úr fætinum hans og eyra, en þau sem lentu í skottinu hans sitja ennþá föst, því þau eru alveg upp í einu beininu. Í dag er hann enn þjáður, aftur hættur að borða og tvísýnt með framhaldið hjá honum.“

Atvikið átti sér stað í Sælingsdal í Dalabyggð fyrr í mánuðnum. Nína segir að kötturinn hafi ekki komið heim í tvo daga og hafi móðir hennar orðið áhyggjufull og farið að leita af dýrinu. Fann hún köttinn undir runna, illa þjáðan vegna skotsáranna.

„Þetta gerist þar sem hann er með móður minni í Laugum í Sælingsdal í Dalabyggð, við Hótel Eddu, einhvern tíman milli laugardags og mánudags 17. 18. eða 19. ágúst, líklegast um nótt. Hann kom ekki heim í um 2 daga svo mamma fór út að leita að honum og fann hann undir runna, með meðvitund en þjáðan. Ef þú veist um einhvern sem var á þessu svæði og með svona byssu, eða veist hver gerði þetta vill ég vinsamlegast biðja þig um að senda mér skilaboð hér á facebook með frekari upplýsingum.“