Brátt niðurstöður í rannsókn muellers

Svo virðist sem komið sé að kaflaskiptum í rannsókn Roberts Mueller sérstaks saksóknara í málefnum Donalds Trumps og afskiptum Rússa af kosningunum 2016.

Samkvæmt frétt NBC undirbýr Mueller nú að skila af sér skýrslu til dómsmálaráðuneytisins með niðurstöðum í þeim þætti rannsónarinnar sem snýr að brotlegum tilraunum forsetans til að hindra framgang réttvísinnar.

Tilvikin sem tilgreind verða snúa að eftirfarandi atriðum: Tilgangi forsetans með að reka James Comey forstjóra FBI; þátttöku hans í að gefa opinberlega ranga lýsingu á fundi sonar hans með Rússum í Trump turninum í júní 2016; að forsetinn hafi gefið þeim sem hugsanlega myndu vitna gegn honum til kynna að hann myndi náða þá; og þrýstingur Trumps á dómsmálaráðherrann Jeff Sessions að hann segði sig ekki frá yfirstjórn rannsóknarinnar.

Samkvæmt frétt NBC er jafnvel gert ráð fyrir að Mueller skili niðurstöðum sínum um þennan þátt á næstu vikum, í síðasti lagi í júní. Allt fram að húsleitinni hjá Michael Cohen einkalögmanni Trumps á mánudag, hafði forsetinn og lið hans undirbúið viðtal sem búist var við að saksóknarinn mynda eiga við Trump. Viðtalið var hugsað sem eins konar lokaþáttur í þessum kafla rannsóknarinnar. Eftir húsleitina er viðtalið ekki lengur á dagskrá og er það talið geta flýtt því að Mueller skili niðurstöðunum.

Þó svo að niðurstöður Muellers hljóði upp á brot sem hugsanlega hægt væri að ákæra fyrir, er talið líklegra að Mueller hlíti vinnureglum dómsmálaráðuneytisins sem segja að ekki sé hægt að ákæra sitjandi forseta. Það verður því í höndum Rod Rosensteins, aðstoðardómsmálaráðherra að ákveða hvort hann birtir niðurstöður Muellers, og/eða sendir þær áfram til þingsins, sem svo tæki ákvörðun um hvort sækja eigi forsetann til saka fyrir brot í starfi.

Reiknað er með að rannsóknin haldi síðan áfram á þeim þáttum málsins sem snúa að hugsanlegu leynimakki Rússa og kosningateymis forsetans.