Niðurstaðan liggur fyrir: „þeir sem vilja banna flugelda eru leiðindapúkar“

Síðustu ár hefur það færst í aukana að fram hefur stígið fólk sem vill draga úr flugeldanotkunn eða hreinlega banna hana. Í þeim hópi eru Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, Jón Magnússon lögmaður og stjörnu-Sævar ásamt sirka sjö prósent Íslendinga. Þá vakti athygli í fyrra þegar fræðimenn við Háskóla Íslands lýstu yfir að heppilegast væri að banna notkun flugelda og þess í stað gætu sveitarfélögin haldið sérstakar flugeldasýningar.

Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður á Vísi tjáir sig á Facebook-síðu sinni og kveðst þar hafa legið undir feldi, velt málinu fyrir sér og hans niðurstaða um flugeldamálin er þessi:

„Þeir sem vilja banna flugelda eru leiðindapúkar og þeir sem eru með ofursensetív öndunarfæri verða bara að redda sér grímu og halda sig innan dyra. Þeim er engin vorkunn með það; mörg undanfarin ár hef ég legið undir rúmi um áramót með mínum lafhrædda Loka.

Við sem eigum þess ekki kost að fylgjast með þessu getum ekki á þeim forsendum krafist þess að þá geti það enginn. Þessum dómi mínum verður ekki áfrýjað.“

Ólína Þorvarðardóttir tjáir sig í þræði Jakobs en þar segir hún: „Svo þegar þitt eigið barn (eða foreldri) verður flutt með sjúkrabíl og öndunargrímu á bráðadeildina vegna díoxíðmengunar sem er komin þúsundfalt yfir heilsuverndarmörk þá yppir þú þínum þungu öxlum og segir eins og forsvarsmaður ferðaþjónustunnar fyrr í kvöld:

„Tja, ferðaþjónustan verður jú að fá sitt hvað sem líður svifryki. Fólk má nú hafa það gaman!“

Í alvöru! Hvurslags blinda er þetta eiginlega? Þúsundföld díoxíðmengun á einu kvöldi. Fólk í andnauð!“