Niðurstaða dagsins: jöfnuður, sanngirni

Mikil þátttaka var í kröfugöngum launþega á frídegi verkafólks í dag - og hefur hún vart verið meiri um langt árabil að því er forkólfar margra helstu stéttarfélaga landsins fullyrða í dagslok. Samstaða og einhugur einkenndi mannfundi dagsins. 


Áberandi samtónn var í ræðum fólks hringinn í kringum landið; samstaða launafólks hefur sjaldan eða aldrei verið meiri, krafan um jöfnuð er ríkari en nokkru sinni áður og sanngirni þarf að vera leiðarljós samfélagsins nú um stundir, miklu fremur en sundrung og stéttaskipting.


Í ræðum margra verkalýðsforingja á frídeginum kom fram sá ótti að samfélagið væri smám saman að færa sig upp á gamalkunnugt skaft ofsagróða og bankabónusa þar sem aðgangur útvalinna að eignum ríkisins væri aftur gefinn frjáls. 


Þá var einnig haft á orði að ríkjandi stjórnvöld hefðu sérhagsmuni fremur að leiðarlljósi í löggjöf sinni og reglusetningu en almannahagsmuni - og var þar ekki síst vísað til nýs frumvarps sjávarútvegsráðherra um  makrílveiðar en ráðherra er þar vændur um að gefa útgerðinni kvótann fremur en að leigja hann af raunverulegum eigenda auðlindarinnar.


Það sem ef til vill stendur upp úr deginum er eindregin samstaða launafólks og sú ríka krafa að allir landsmenn fái hlutdeild í bættum hag þess - og ef ekki, þá sé verkfallsvopnið beittara en nokkru sinni.