Niðurskurður: kirkjan biðst vægðar

Kirkjuráð leggur til við kirkjuþing á föstudag að frekari niðurskurður verði ekki samþykktur. Líklegt er að viðauki við kirkjujarðasamkomulag þjóðkirkjunnar endi fyrir gerðardóm.
 
Kirkjuráðsfulltrúi segir í samtali við fréttastofu RÚV að kirkjan geti einfaldlega ekki geta meir - ekki gangi lengur að selja eignir til borga prestum laun.
 

Í frétt RÚv segir að kirkjan hafi frá fjármálahruninu 2008 samþykkt viðauka við svokallað kirkjujarðasamkomulag sem hún gerði við ríkið árið 1997.  Ríkið fékk þá kirkjujarðir gegn þeirri skuldbindingu að ríkið greiddi laun presta og starfsmanna Þjóðkirkjunnar. Niðurskurðurinn hefur verið umtalsverður, eða 21% samkvæmt minnisblaði fjármálastjóra Biskupsstofu í október 2013.

Kirkjuráð kom saman í lok júlí - það samþykkti að leggja til við Kirkjuþing að samþykkja ekki þennan viðuaka, í fyrsta skipti frá hruni. Á fundi Kirkjuráðs í gær var síðan ákveðið að kalla saman aukafund Kirkjuþings þar sem þetta verður lagt til. Allar líkur eru á Kirkjuþing fallist á þessa tillögu.

Svana Helan Björnsdóttir, sem á sæti í Kirkjuráði, segir viðp RÚV að Þjóðkirkjan geti einfaldlega ekki meir - þjóðkirkjan hafa mátt þola meiri niðurskurð en aðrar stofnanir. Hún hafi frá árinu 2008 - þegar fjármálakerfið hrundi - ekki lagst gegn þessum mikla niðurskurði og þannig lagt sitt af mörkunum.

Hún segir að kirkjan hafi þurft að mæta þessum niðurskurði með sölu eigna, sameiningu sókna og uppsögnum presta - ríkið greiði nú fyrir 107 en samkvæmt kirkjujarðasamkomulaginu eigi þeir að vera 138. Þjóðkirkjan hafi getað haldið úti stöðugildum 126 presta með sölu eigna  - nú gangi það ekki lengur.

Svana segir þjóðkirkjuna hafa reynt að ná samkomulagi við ríkið - án árangurs. Því séu allar líkur á því að deilunni verði skotið til gerðardóms.