Niðurbrot stjórnmálalegrar umræðu

Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði, mætir í Þjóðbraut Hringbrautar í kvöld, til að tala um kappræður þar sem mættust í nótt Dondald Trump og Hillary Clinton.

Eiríkur hefur áður mætt til að ræða kosningabaráttuna vestra. Eftir útsendinguna í nótt skrifaði Eiríkur á Facebook:

„Þetta voru líklega undarlegustu kappræður í langa hríð. Maður átti von á því að Trump myndi reyna að sækja fram og komast yfir erfiðleika liðinna daga en þess í stað hóf hann að draga Clinton með sér ofan í svaðið. Það tókst sumpart. Hún reyndi að halda sig frá versta drullusvaðinu en var samt furðanlega mikið í vörn, án þess þó að ná að svara öllum ásökununum. Enda slett í allar áttir. Þetta var ekki fjörugt, ekki skemmtilegt sjónvarp eins og síðast heldur bara illkvittið og rætið. Einkennilegst var þó þegar Trump hótaði að skipa sérstakan saksóknara og fangelsa Clinton. Engin brást þó við þeirri hótun, bara eins og hún hafi ekki verið sett fram. Eins og að svoleiðis væri bara sjálfsagt innlegg í kosningabaráttu. Eiginlegt niðurbrot stjórnmálalegrar umræðu. Hálfvelgjuleg hlý orð í garð hvors annars í lokin þvinguð fram af fyrirspyrjanda náðu ekki að breiða yfir óþægilegar umræðurnar. Já, óþægilegt er orðið sem lýsir þessu best.“

Þjóðbraut er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:00 í kvöld.