Málflutningur fór fram í dag máli Samtaka atvinnulífsins (SA) gegn Eflingu stéttarfélagi í Félagsdómi. SA höfðuðu síðasta föstudag mál gegn Eflingu vegna fyrirhugaðs verkfalls hreingerningafólks næstkomandi föstudag. Samkvæmt upplýsingum frá Halldóri Benjamín Þorbergssyni, framkvæmdastjóra SA, niðurstaða dómsins væntanlega á miðvikudaginn.
Bæði er þess krafist í kröfum SA að verkfallið verði dæmt ólögmætt og að Efling verði dæmd til að greiða sekt í ríkissjóð.
Spurður hvort hann hafi tilfinningu fyrir niðurstöðu dómsins segir Halldór í samtali við Fréttablaðið að samtökin myndu aldrei fara þessa leið ef þau væru ekki viss í sínu máli.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/frettir/niurstaa-felagsdoms-um-verkfall-vaentanleg-a-mivikudag