Ní­undi hver landsmaður í kringl­una í dag

Mik­ill fjöldi fólks sem er að leggja loka­hönd á jólainn­kaup­in hef­ur lagt leið sína í Kringl­una í dag og síðustu dag. Í gær komu um 35 þúsund manns í versl­un­ar­miðstöðina og gert er ráð fyr­ir á bil­inu 38 til 40 þúsund manns hvorn dag í dag og á morg­un. Þetta seg­ir Sig­ur­jón Örn Þórs­son, fram­kvæmda­stjóri Kringl­unn­ar, í sam­tali við mbl.is. Þetta þýðir að einn af hverj­um níu lands­mönn­um sé lík­leg­ur til að koma við í Kringl­unni í dag, en lands­menn eru rúm­lega 355 þúsund.

Hann seg­ir jóla­versl­un­ina al­mennt hafa gengið vel og legg­ist vel í kaup­menn. Seg­ir hann bæði aðsókn og viðbrögð kaup­manna vera á þá leið að bú­ast megi við svipaðri eða aðeins betri sölu í ár en í fyrra.

Þor­láks­messa og laug­ar­dag­ur­inn fyr­ir Þor­láks­messu eru stærstu versl­un­ar­dag­ar jóla­versl­un­ar­inn­ar og þar með með stærstu versl­un­ar­dög­um árs­ins. Í ár eru þess­ir dag­ar í röð og því nóg að gera þessa helgi að sögn Sig­ur­jóns.

Þrátt fyr­ir aukn­ar vin­sæld­ir net­versl­un­ar seg­ir Sig­ur­jón að ekki megi merkja neinn sam­drátt, hvorki í aðsókn eða veltu, núna fyr­ir jól­in vegna þess.

Nánar á

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/12/22/niundi_hver_landsmadur_i_kringluna_i_dag/