Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað í samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga - og vekur athygli að fulltrúi neytenda fær þar sæti við hlið framleiðenda og fulltrúa atvinnulífs.
Í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu vegna þessa er vakin athygli á því að við afgreiðslu búvörusamninganna árið 2016 hafi verið lagt upp með að skipaður yrði sjö manna samráðshópur, en í tíð tveggja síðustu ríkisstjórna hafi fulltrúum fjölgað í annars vegar 12 og hins vegar 13. Í lok síðasta árs hafi svo ráðuneytið afráðið að endurskipa í hópinn enda talið rétt að vinna hópsins tæki mið af þeim áherslum sem fram komu í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.
Alls eiga nú átta fulltrúar sæti í hópnum og fara tveir þeirra sameiginlega með formennsku. Samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga skipa: Brynhildur Pétursdóttir, formaður (Neytendasamtökin), Haraldur Benediktsson, formaður (skipaður af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra), Þórlindur Kjartansson (skipaður af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra), Hafdís Hanna Ægisdóttir (skipuð af umhverfis- og auðlindaráðherra), Jóhanna Hreinsdóttir (Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði), Halldór Árnason (Samtök atvinnulífsins), Sindri Sigurgeirsson (Bændasamtök Íslands) og Elín Heiða Valsdóttir (Bændasamtök Íslands).
Starfshópnum hefur verður sett erindisbréf sem tekur mið af þeim umræðum sem fram fóru á Alþingi þegar gildandi búvörulög voru samþykkt og þeim áherslum sem fram koma í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar. Lögð verður áhersla á að hópurinn ljúki störfum sem fyrst og eigi síðar en í lok árs 2018.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að við skipan hópsins hafi hann lagt ríka áherslu á að veita sjónarmiðum neytenda aukna vigt við endurskoðun búrvörusamninganna, m.a. með því að skipa fulltrúa Neytendasamtakanna sem annan formanna hópsins: \"Þessi fjölbreytti hópur hefur fulla burði til að ná víðtæku samkomulagi um tillögur sem geta orðið grundvöllur að öflugum atvinnurekstri í landbúnaði og ekki síður skapað meiri sátt um uppbyggingu íslensks landbúnaðar,\" segir ráðherrann.