Þegar Daninn Vagn Jelsøe ætlaði að fljúga héðan og heim til Kaupmannahafnar í júlí sl. þá seinkaði brottför Icelandair um meira en þrjá klukkutíma. Flugfélagið var því bótaskylt gagnvart farþegunum en starfsmenn þess upplýstu þó farþegana ekki um réttindi þeirra. Það þótti fyrrnefndum Jelsøe ámælisvert en hann þekkir vel réttindi flugfarþega enda í forsvari fyrir Forbrugerrådet, ein stærstu neytendasamtök Danmerkur.
Svona segir orðrétt frá í frétt turisti.is og enn fremur að Jelsøe hafi tekið málið upp þegar heim til Danmerkur var komið og var meðal annars fjallað um það í dönskum fjölmiðlum.
Meira um þetta mál hér á vef turisti.is