Verð á neysluvöru hefur hækkað að meðaltali um 75% á síðustu 10 árum hér á landi, en til samanburðar hefur verð á sama vöruflokki hækkað að meðaltali um 20% á öðrum Norðurlöndum. Krónan hefur veikst um 80% á sama tímabili.
Þetta kemur fram í máli Henný Hinz, hagfræðings Alþýðusambands Íslands í þættinum Heimilinu á Hringbraut í kvöld, en þar fær Sigmundur Ernir til sín fjölda fagmanna og sérfræðinga til að ræða rekstur og viðhald heimilisins og veita góð ráð um sparnað og nýtni.
Í þættinum minnir Henný á að verð á helstu neysluvörum hér á landi hafi hækkað að meðaltali um 50% á áratugnum 1996 til 2005, en hækkað sem fyrr segir mun meira á þeim tíu árum sem síðar fóru í hönd. Mjög misjafnt sé hvað neysluflokkar hafi hækkað mikið í verði; tölvur, sjónvörp og símtæki hafi jafnvel lækkað í verði á þessum tíma, en annað hafi meira og minna hækkað, leikskólagjöld og heilbrigðisþjónusta þó einna síst, eða um 30%, símaþjónusta um 40%, húsnæðisliðurinn um 80% og matvara og drykkir um það sama. Hástökkvararnir í þessum efnum séu tryggingar annars vegar með 120% hækkun og póstþjónusta hins vegar sem hækkað hafi um 170% frá því árið 2005.
Á þessu umrædda tímabili hafa laun almennings að meðaltali hækkað um 100%, kaupmáttur um 16% en inn í allan þennan samanburð verður að hafa í huga að gengi krónunnar hefur veikst um 80% frá því fyrir einum áratug.
Heimilið er á dagskrá Hringbrautar í kvöld klukkan 20:00 og þar geta áhorfendur ekki einasta fræðst um verðlag hér á landi, heldur og kynnst ráðum til að spara rafmagn á heimilum, fengið tryggingarráðgjöf, fræðst um meindýr á heimilum og kynnst bílum framtíðarinnar, auk þess sem upplýsandi innslag um flokkun og endurvinnslu verður á sínum stað í fjölbreyttum þættinum.