Neysla harðra fíkniefna að aukast

Svo virðist sem framboð af kókaíni, amfetamíni og öðrum sterkum fíkniefnum hafi aukist hér á landi á undanförnum mánuðum, en mikið magn af þessum efnum fannst við eftirgrennslan lögreglu á Þjóðhátíð um síðustu helgi.

Mjög dró úr smygli á þessum hörðu fíkniefnum til landsins eftir efnahagshrunið, en þá virtist sem fíklar sneru sér í auknum mæli að vægari efnum á borð við kannabis. Á sama tíma jókst heimaræktun á grasi til mikilla muna og virðist ekkert hafa dregið úr henni þótt sterku efnin skili sér nú í ríkari mæli í neysluna.

Aldís B. Hilmarsdóttir, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir við Morgunblaðið í dag hefur aukningar á notkun hörðu efnanna augljóslega orðið vart í sumar: \"Það er stöðugt verið að taka smærri sendingar. Við höfum líka tekið talsvert af stærri sendingum og það virðist lítið hafa slegið á, það virðist vera mikið framboð af þessum efnum,\" segir hún í frét blaðsins um málið í dag.