Neyðarnúmerið 112 er 20 ára í dag

112-dagurinn er haldinn um allt land í dag og er sjónum að þessu sinni beint að almannavörnum. Aðstandendur dagsins fræða almenning um almannavarnir og er sérstök áhersla lögð á að fjalla um viðbúnað og viðbrögð almennings við náttúruhamförum á borð við jarðskjálfta og óveður. 

Guðrún Jóhannesdóttir, verkefnastjóri hjá almannavarnadeild RLS, segir mikilvægt að almenningur hugi að réttum viðbúnaði og viðbrögðum: \"Almenningur getur gert svo margt til að draga úr tjóni og afleiðingum náttúruhamfara með undirbúningi og réttum viðbrögðum,“ segir Guðrún, en tarlegar upplýsingar um viðbúnað og viðbrögð er að finna á almannavarnir.is´sem vert er að fólk kynni sér.

Neyðarlínan gegnir lykilhlutverki í almannavörnum með móttöku og úrvinnslu neyðarbeiðna og rekstri Tetra-fjarskiptakerfisins sem viðbragðsaðilar nota innbyrðis og sín á milli. Mikil útbreiðsla GSM og rekstur Tetra gera viðbrögð við vá miklu skilvirkari og einfaldari en áður var og eru ein meginforsenda fyrir rekstri samhæfingarstöðvar almannavarna, að sögn Þórhalls Ólafssonar, framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar, en rétt er að vekja athygli á því að hann er aðalgestur í þætti Atvinnulífsins á hringbraut í kvöld, en þátturinn sem frumsýndur var í fyrra og fjallar um starfsemi Neyðarlínunnar, er endursýndur klukkan 20:30 í tilefni dagsins.

Neyðarlínan fagnar einmitt 20 ára afmæli um þessar mundir en 1. janúar síðastliðinn voru liðin 20 ár síðan samræmda, evrópska neyðarnúmerið var tekið í notkun hér á landi. Það leysti af hólmi 146 mismunandi númer viðbragðsaðila sem almenningur notaði til að leita eftir aðstoð, allt eftir því hvar fólk var statt og hvers eðlis þörfin fyrir aðstoð var hverju sinni.

\"Það var mikið framfaraskref þegar eitt samræmt neyðarnúmer fyrir landið allt og alla viðbragðsaðila var tekið í notkun. Meirihluti landsmanna hefur notað neyðarnúmerið og mælingar sýna að yfirgnæfandi meirihluti notenda er ánægður með þjónustuna,“ segir Þórhallur, en 20 ára afmælinu verður fagnað við athöfn í bílageymslu SHS í Björgunarmiðstöðinni klukkan 16:00 í dag.