Neyðarkall úr eyjum: nóg komið!

Þórdís Gyða Magnúsdóttir, dóttir manns í Eyjum sem er langt leiddur Alzheimer-sjúklingur, skrifar átakanlega lýsingu á fésbók sinni í dag um viðskipti fjölskyldunnar við heilbrigðisþjónustu landsmanna, en faðir hennar , Magnús Örn Gumundsson getur ekki fengið svæfingu í Eyjum vegna tannskemmda sem hann glímir við.

Hingað og ekki lengra, skrifar Þórdís Gyða, en færsla hennar er eftirfarandi: \"Þið mörg munið kannski aðeins eftir okkar máli sem við tókum fyrir alþjóð fyrir einu og hálfu ári síðan. Nú er ég mikið að spá í að taka upp þráðinn og kvarta aðeins meira. Mér stendur orðið ekki á sama hvernig heilbrigðiskerfið okkar er statt.

Svo er mál með vexti að hann pabbi minn sem er komin langleiðina í sínum veikindum(Alzheimer) er komin með tannpínu ofan á allt. Mörg ykkar hugsið, já afhverju fer hann ekki til tannlæknis og lætur laga þetta. Málið er ekki svo einfalt. Pabbi er aðeins með 6 tennur upp í sér eftir nokkuð margar tanntökur en nú er hann það langt genginn á sjúkdóminn að erfitt er að fara með hann til tannlæknis og láta fjarlægja restina, því þarf hann að fara í svæfingu og láta rífa tennurnar úr sér. Hér í eyjum eru til svæfingargræjur en því miður ekkert verið notaðar síðustu misseri. Núna á þessari stundu er svæfingarlæknir á eyjunni sem við ætluðum að fá að framkvæma svæfingu á karlinum en haldið þið ekki að svæfingargræjurnar eru bilaðar!

Okkur er semsagt boðið sá kostur að fara með pabba í Herjólf í 40 mínútur, keyra með hann til Reykjavíkur sem tekur 1 og hálfann til 2 tíma ÖNNUR leið og fara með hann til kjálkaskurðlæknis. Við getum fengið sjúkrabíl eða bíl fyrir fatlaða til þess að keyra með hann alla þessa leið og verið er að ATHUGA með hvort við fáum hjúkrunarfræðing með okkur í för. Enginn séns er á sjúkraflugi.

Pabbi minn er kominn í hjólastól, getur ekki gengið án þess að hafa 1-2 aðila með sér, talar lítið sem ekki neitt, borðar stundum sjálfur en fær yfirleitt hjálp, hann þarf hjálp til þess að komast á klósettið og er ofan á allt að drepast úr tannpínu sem er lítið hægt að gera í nema með tanntöku.

Ég veit ekki með ykkur en ég er rjúkandi reið. Ekki bara fyrir pabba hönd heldur okkur hin sem búum á þessari eyju. Fyrir mína parta fannst mér ég vera nokkuð örugg þegar svæfingarlæknir og skurlæknir væru staddir hér á sama tíma, því ef eitthvað kemur upp á þá væri hægt að grípa inn í eins og fyrir fæðingar, slys og annað slíkt.

Nennið þið stjórnmálamenn og konur að fara að hunskast til að vinna vinnuna ykkar! Farið að forgangsraða hlutunum og komið heilbrigðiskerfinu okkar í lagi! NÚNA,\" skrifar Þórdís Gyða.