Líkast neyðarástandi í þjóðleikhúsinu

\"Þetta er neyðarástand,“ segir Ari Matthíasson þjóðleikhússtjóri vegna launamunar leikara í húsinu samanburði við kollega þeirra í Borgarleikhúsinu og hjá Leikfélagi Akureyrar. Munar þar fimmtungi í launaumslagi. Hann óttast fjöldauppsagnir, verði ekkert að gert.

\"Og maður verður að bregðast við því eins hratt og eins vel og hægt er,\" segir hann í samtali við Fréttablaðið í morgun: \"Þetta er ekki spurning hvort ég vilji bregðast við heldur verð ég að bregðaurðist við.“

Birna Hafstein, formaður Félags íslenskra leikara, segir í frétt blaðsins að hvorki samninganefnd ríkisins né gerðardómur hafi tekið tillit til sérþarfa leikara við Þjóðleikhúsið: \"Ég bað ítrekað um fundi með samninganefnd ríkisins til að fara yfir málefni Þjóðleikhússins sérstaklega. Það eru alls konar vandamál sem þarf að leysa þar og svo er uppi þessa sérstaka staða að Þjóðleikhúsið hefur dregist svo langt aftur úr. En ég fékk ekki fund með þeim,“ segir hún. Gerðardómi hafi síðan verið skylt að hafa aðra kjarasamninga sambærilegra stétta til hliðsjónar.

Birna segir að nú séu hendur leikara bundnar og ef ekkert gerist búist hún við hópuppsögnum: \"Mér finnst ótrúlegt að búa í nútímaþjóðfélagi þar sem yfirvöld geta gengið fram með þeim hætti að setja lög á verkföll. Næstu tvö og hálft árið þá mega þjóðleikhúsleikarar ekki fara í verkföll. Það er búið að afnema frelsi fólks til að leggja niður vinnu og frelsi fólks til að geta unnið sér fyrir mannsæmandi launum.“

Hún horfir til fjármögnunar stofnanasamnings Þjóðleikhússins sem mögulegrar lausnar til að rétta af kjör leikara Þjóðleikhússins. Ari segir að enn sem komið er hafi enginn sagt upp en ef fjármögnun leikhússins breytist ekki geri hann ráð fyrir uppsögnum.