Neyðaraðstoð Íslendinga í Nepal hefur skilað miklum árangri á þeim þremur mánuðum sem liðnir eru frá jarðskjálftunum miklu í Nepal sem kostuðu fjölda mannslífa og gríðarlega eyðileggingu í höfuðborginni Katmandú og víðar um landið.
Fjöldi landsmanna svaraði neyðarkalli Unicef og árangurinn hefur ekki látið á sér standa eins og Unicef á Íslandi segir frá í tilkynningu í dag. Komið hefur verið upp 293 neyðarskýlum sem nýtast sem sjúkratjöld eða barnvæn svæði, hundruðum þúsunda barna hefur verið útveguð nauðsynleg hjálpargögn, meðal annars bólusetningar, moskítónet, lyf og bætiefni, útdeilt hefur verið um 59.000 pökkum af hreinlætisvörum, yfir 650 þúsund manns hefur verið útvegað hreint drykkjarvatn, sett hafa verið upp 1,061 tímabundin kennslusvæði til að viðhalda menntun barna á svæðinu, endurbyggð hafa verið fæðingarrými í yfir 150 heilsugæslustöðvum, tæplega 30 þúsund börnum hefur verið veittur sálrænn stuðningur eftir hamfarirnar - og gripið hefur verið inn í tilraunir til mansals á yfir 500 konum og börnum.