Eftir að fríverslunarsamningur Íslands og Kína tók gildi, hafa fleiri, fleiri tonn af vörum streymt frá Kína, en viðskipti af þessu tagi eru bæði orðin öruggari og einfaldari en áður.
Netverslun hefur því aukist svo um munar hjá landanum og segir Halla Garðarsdóttir, deildarstjóri tollmiðlunar Póstsins, að netverslun frá Kína sé farin að ganga það greiðlega fyrir sig að ef vara er gölluð, er í flestum tilfellum auðvelt að fá hana endurgreidda og senda til baka. Það gildi þó aðallega ef varan kostaði minna en 40.000 krónur.
Þetta er meðal þess sem kom fram í þættinum Ég bara spyr sem sýndur var á Hringbraut í gærkveldi. Þar rýndi Rakel Garðarsdóttir í helstu mál varðandi netverslun frá útlöndum og spurði meðal annars hvort vörur frá Kína væru ekki svo ódýrar að oft sleppti fólk því hreinlega að sækja þær til Póstsins. Halla sagði það auðvitað stundum koma upp, en þó væri það ekki algengt. Þannig væru innan við 1% af vörum ósóttar hjá Póstinum.
Til að geta verslað tollfrjálsan varning frá Kína, skiptir þó öllu máli að varan sé send frá Kína til Íslands. Þess vegna er mikilvægt að kaupendur kynni sér söluaðilan vel og athugi hvort hann sé nokkuð að senda vöruna frá nærliggjandi svæðum, til dæmis Sviss.
Ég bara spyr er endursýndur á föstudagskvöldið kl.21.30 og á sunnudagskvöldið kl.23.30.