Viðtal Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra í Kastljósi í kvöld hefur vakið mikla athygli en þar sagðist hann ekki telja sig hafa brotið sóttvarnarlög þrátt fyrir yfirlýsingar lögreglu um að brot hafi verið framin í samkvæminu í Ásmundarsal.
„Ég brýt ekki sóttvarnalög með því að mæta á sölusýningu á Þorláksmessu,“ sagði Bjarni og líkti samkvæminu við verslun og sýningu. Einar Kárason rithöfundur tekur saman viðtal ráðherrans og setur skilgreiningu hans á rýminu í nýtt samhengi.
„Í örstuttu máli: Síðast þegar ég kom í Ásmundarsal var það í bókarútgáfuhóf. Þar á undan á myndlistarsýningaropnun, og tónleika. Frá því síðla síðasta vetrar hefur ekkert af því tagi verið haldið neinsstaðar, því að allir hafa haldið að allt slíkt væri bannað. En yfirstéttin úr Garðabæ kann trixin: Skilgreinum salinn sem "verslunarrými" and we can party all night.
Fleiri netverjar hafa tjáð sig um viðtalið. Uppistandarinn og sviðshöfundurinn Stefán Ingvar Vigfúson veit alveg hvað Bjarni átti við.
Þegar Bjarni Ben segir “mér var ekki boðið í neitt samkvæmi” þá er hann að lýsa allri menntaskólagöngunni sinni
— [email protected] (@SVigfusson) December 28, 2020
Í viðtalinu sagðist Bjarni ekki ætla að segja af sér. Hann hafi lofað flokksmönnum sínum og landsmönnum öllum að berjast fyrir baráttumál þeirra í blíðu og stríðu.
„Ég stend ekki upp og geng frá borði þó að það sé erfitt tímabundið,“ sagði hann.
Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi VG, vildu bæta nokkkru við viðtalið.
Og svo hefði #kastljós mátt bæta við: Kæri Bjarni. #segðuafþér
— Sóley Tómasdóttir (@soleytomasar) December 28, 2020
Guðrún Andrea og Kristín Lovísa höfðu þetta að segja:
Jæja Bjarni pic.twitter.com/cGSXnFRCp3
— Guðrún Andrea (@grullubangsi) December 28, 2020
@Bjarni_Ben þó þú viljir ekki segja af þér og einhverjur styðji þig þá vill stór hluti þjóðarinna það! Þetta er ekki í 1. skipti sem þjóðin vill að þú segir af þér! Hvernig væri að hlusta svona einu sinni!! #segðuafþér
— Kristín Lovísa (@Lobbsterinn) December 28, 2020
Bjarni áréttaði að hann væri ekki dyravörður og bæri því ekki ábyrgð á að telja inn í húsið.
„Ég er ekki dyravörður í þessu húsi. Það er annað fólk sem sér um þá hluti og maður er ekki að taka á sig þær áhyggjur,“ sagði hann.
Þorsteinn V. Einarsson, forsprakki #karlmennskunnar, deildi línunni fleygu.
„Ég er ekki dyravörður í þessu húsi”
— Þorsteinn V. (@idnadarmadurinn) December 28, 2020
Kennari: ok eru öll mætt?
— [email protected] (@SVigfusson) December 28, 2020
Nemandi: Ég veit það ekki, ég er ekki dyravörður í þessu húsi
"Sko"
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) December 28, 2020
"Það er hægt að horfa á þetta frá nokkrum hliðum"
"Fyrir alla þá staði sem ég hef komið á undanfarinn mánuð þá hafa hlutirnir verið í lagi"
"Ég er ekki dyravörður í þessu húsi"
Bjarni var í Ásmundarsal í kortér. Hitti vini sína, talaði við eigendur, þáði drykk, talaði drjúga stund við listamanninn, var með andlitsgrímu hluta tímans, ræddi við konuna sína um hversu margir væru á staðnum ... en í kortérslöngu viðtali í Kastljósi sagði hann ekkert að viti!
— Kristján Freyr (@KrissRokk) December 28, 2020