Neikvæð ummæli Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur leikkonu um Kópasker og Raufarhöfn vöktu mikla athygli um helgina.
Í Fréttablaðinu í dag greinir Þórdís frá því að sér hafi verið hótað lífláti og nauðgun fyrir athugasemdirnar sem hún segir hafa verið sagðar í gríni samhliða jákvæðum ummælum um staðina.
Í einkaskilaboðum frá hinum ýmsu aðilum var henni þannig meðal annars verið sagt að skammast sín, hún kölluð „djöfulsins femínista tussa“ og henni hótað barsíðum svo fátt eitt sé nefnt.
Skilaboðin hafa vakið hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum og eru margir netverjar æfir vegna ummælanna.
Nýtt markaðsátak? Komdu til Kópaskers eða ég nauðga þér og drep þig svo tussan þín.
— Dr. Gunni (@drgunni) July 22, 2020
Guð og aðrar góðar vættir hvað þetta er viðbjóðslegt… Það skiptir engu máli hvort þetta grín hafi verið misheppnað eða tekið úr samhengi eða mjög svartur húmor sem er ekki allra – viðbrögðin eru andstyggileg. ☹️ Af hverju er fólk svona? https://t.co/r6RP0Bqbod
— Erlendur (@erlendur) July 22, 2020
Smásálarskapur sumra á landsbyggðinni er jafnútblásinn og atkvæðavægið. Kominn tími til að leiðrétta hvorttveggja. https://t.co/SyguyPjh49
— Þorsteinn Guðmunds (@ThorsteinnGud) July 22, 2020
Holy shit hvað þetta er lasið fólk. https://t.co/z5vRRpcQLO
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) July 22, 2020
Óska eftir lista um hvað karlar mega grínast um án afleiðinga og hvað aðrir mega grínast um án afleiðinga.
— Margrét Erla Maack (@mokkilitli) July 22, 2020
Ég man ekki eftir að hafa verið hótað ofbeldi eða nauðgunum vegna frétta sem ég hef skrifað eða vegna misgáfulegra ummæla á samfélagsmiðlum. Þetta er ömurlegur vitnisburður um að kynbundið ofbeldi þrífst vel og þarf að uppræta.
— Stefán Rafn (@StefanRafn) July 22, 2020
https://t.co/jipKTPeyNs
— Kristrún Emilía (@KristrunEmilia) July 22, 2020
Öll velkomin á Kópasker og Raufarhöfn 🙃 þar er samt bannað að segja ljótt, annars verðuru drepin/n.