Netverjar hneykslaðir á orðum kynnis Söngvakeppninnar

Áhorfendur söngvakeppninnar lýsa yfir furðu yfir viðtali Bjargar Magnúsdóttur, eins kynnis Söngvakeppninnar, við söngkonuna Kötlu í græna herberginu.

Katla sýndi hálsmen sem hún lét útbúa úr giftingarhring föður sinnar sem lést árið 2018.

„Ég bjó þetta til. Þetta er giftingarhringurinn hans þannig hann er alltaf með,“ sagði Katla.

„Hún er að reyna að fá atkvæði út á þetta. Neeeiii,“ sagði þá Björg eftir að Katla sýndi hringinn.

Ljóst er að áhorfendum hafi þótt athugasemdin heldur ósmekkleg. Fréttablaðið tók saman helstu reiðikommentin.