Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra atvinnumála, fengu vægast sagt hörð viðbrögð frá netverjum þegar þær deildu frétt New York Times um bandaríska fjölskyldu sem nýttu sér úrræði stjórnvalda til að starfa hér á landi í COVID-19 faraldrinum. „Góð ákvörðun sem tekin var í covid í veruleika þar sem fjarvinna fer vaxandi,“ sagði Áslaug Arna, „Iceland ákvörðunin okkar og áherslur er að skila sér,“ sagði Þórdís á Twitter.
Góð ákvörðun sem tekin var í covid í veruleika þar sem fjarvinna fer vaxandi 💥
— Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) May 26, 2021
Þessi geggjaða mynd: Brent Ozar, 47, and his wife have been working remotely in Iceland since January, and will stay until the fall before returning home to San Diego. https://t.co/8IIaCe4Y8V
Remote work visa - Iceland ákvörðunin okkar og áherslur er að skila sér👊🏼 https://t.co/Mp91J7U9fP
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (@thordiskolbrun) May 26, 2021
Margrét nokkur sagði: „Það er bara þitt hjartans mál að standa í hvítum forréttinda millistéttar femínisma í krafti stöðu þinnar? GERÐU BETUR!!“
Áslaug svaraði að bragði: „Það var líka tekin sérstök ákvörðun í covid að gefa fleirum efnismeðferð í verndarkerfinu vegna stöðunnar sem Ísland gerði eitt landa. Aldrei hafa fleiri fengið alþjóðlega vernd hérlendis og í fyrra.“
Tinna, sem kennir sig við öfgafeminisma, segir: „Hvenær ætlar Sjálfstæðisflokkurinn bara að gera mottóið sitt að "Peningar > fólk"? Það væri amk hreinskilið...“
María Lilja Þrastardóttir, fjölmiðlakona og aktívisti, sagði við Áslaugu: „Finnst þér það í alvöru? Því mér finnst ógeðslegt að horfa uppá þig hampa ríkum “hælisleitendum” sem leiddist heima hjá ser í covid á meðan þú gengur fram með ofbeldi gegn fólki sem er að flýja stríð og á ekkert,“ og bætti við: „Skammastu þín“
Andrés Jónsson, almannatengill, sagði: „Meira svona“ við Þórdísi, og fékk spurningu frá Maríu Lilju: „Meira hvítt vald? Eða hvað er það sem þér finnst vera til fyrirmyndar hérna?“
Andrés sagði að hann skildi þetta ekki alveg, það megi endilega halda áfram að auðvelda fólki að flytja hingað til lands til að vinna eða stofna fyrirtæki, hér sé pláss og þörf á fólki.
„Auðvelda hvítu ríku fólki þá?,“ spurði María Lilja.
Andrés svaraði: „Nei alveg óháð uppruna en það er eðlilegt að gera einhverjar kröfur. Kanada hefur verið eitt vinsamlegasta land fyrir innflytjendur síðustu ár hefur manni sýnst. Þar eru gerðar kröfur samt hefur hlutfall innflytjenda aukist mikið þar. Sérstaklega frá Asíu.“
Bjartur Aðalbjörnsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, deildi tísti Áslaugar og sagði: „Leyfið þeim ríku að koma til mín. Fátæka fólkið á flótta má éta það sem úti frýs.”
Bragi Páll Sigurðarson, rithöfundur sem hefur áður gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn, bjó til stutt leikrit á Twitter:
„Mannauðsstjóri Útlendingastofnunar: Hefuru skoðun á hvítu fólki með yfir milljón í mánaðartekjur?
Umsækjandi: *Klappar eins og selur og gefur frá sér selahljóð*
Mannauðsstjóri: En brúnt fólk að flýja stríð?
Umsækjandi: *Kúgast - Gubbar heilli síld*
Mannauðsstjóri: ÞÚ ERT RÁÐIN/N!“