Netflix hefur hækkað meira Walt Disney Co. í markaðsvirði. Þar af af leiðandi er það orðið verðmætasta fjölmiðlafyrirtækið. Þetta kemur fram á vef Bloomberg og Viðskiptablaðið segir frá.
Í fréttinni segir að hlutabréfaverð Netflix hækkaði um 1,5 prósen. Netflix jók tekjur sínar um 40 prósent á síðast ársfjórðungi.
Netflix sem er bandarískt fyrirtæki var stofnað í Kaliforníu árið 1997 af tveimur mönnum, Reed Hastings og Marc Randolph sem hófu að leigja og selja DVD myndir á Netinu. Árið 2013 jók fyrirtækið umfang sitt og hóf framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis auk efnis á Netinu sem hægt er að panta að vild fyrir lítinn pening, eins og margir Íslendingar þekkja.