Netanyahu: íran laug um kjarnorkuáætlun

Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísrael segir að Íranir hafi unnið að þróun kjarnorkuvopna í laumi í langan tíma og hafi logið að umheiminum þegar kjarnorkusamkomulagið við þá var gert 2015.

„Kjarnorkusamkomulagið er byggt á lygum og blekkingum Írana,“ sagði Netanyahu á fundi með fréttamönnum í dag. „Þetta er skelfilegt samkomulag sem hefði aldrei átt að samþykkja.“

Donald Trump Bandaríkjaforseti tekur ákvörðun á næstu dögum hvort Bandaríkin segi sig frá samkomulaginu, eins og hann hefur sterklega ýjað að.

„Ég er viss um að hann gerir það rétta í stöðunni,“ sagði Netanyahu. „Það sem er rétt fyrir Bandaríkin, rétt fyrir Ísrael og rétt fyrir heimsfriðinn.“

Hann sagði að Íranir hefðu geymt öll gögn um kjarnorkuvopnaáætlun sína. Ísrael hefði komist yfir óyggjandi upplýsingar áætlunina, sem íranskir rámenn hafi þrætt fyrir, og þessum upplýsingum hefði verið deilt með bandarískum yfirvöldum.  

Kjarnorkuamkomulagið meinar þó ekki Íran að eiga gömul gögn um kjarnorkuvopnaþróun og gögnin sem Neatnyahu sýndi í dag sýna ekki brot á samkomulaginu, að mati sérfræðinga.