Nesið: leikskólagjöld lækkuð um 25%

Frá og með 1. janúar 2016 lækka leikskólagjöld á Seltjarnarnesi um 25% og verða þar með þau lægstu á landinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum í dag.

Þar segir að Seltjarnarnesbær hafi gefið út fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 og næstu þrjú ár þar á eftir og hafi hún verið lögð fram til fyrri umræðu í gær. Þar sé gert ráð fyrir að tekjur bæjarfélagsins verði tæpir 2,5 milljarðar króna og rekstrarafgangur verði 16 milljónir króna.
Lækkun leikskólagjalda um 25% frá 1. janúar sé ætlað að koma til móts við barnafjölskyldur í bæjarfélaginu. Tómstundastyrkir með hverju barni 6 – 18 ára verði kr. 50.000,- og niðurgreiðslur til foreldra með börn hjá dagforeldrum, sem nú nemi kr. 75.000, verði einnig hækkaðar frá 1. janúar nk.

Helstu framkvæmdir í bænumá næsta ári felast í byggingu 40 rýma hjúkrunarheimilis. Einnig stendur til að endurnýja gervigrasið á knattspyrnuvelli Íþróttafélagsins Gróttu ásamt því að sinna öðrum almennum viðhaldsframkvæmdum.

Skuldahlutfall er komið undir 50% og fer lækkandi á hverju ári, segir í tilkynningunni sem bæjaryfirvöld sendu frá sér í dag.