Eygló Harðardóttir segir það koma í ljós hvort nýstofnað Framfarafélag komi til með að kljúfa Framsóknarflokkinn, Aðeins einn núverandi þingmaður flokksins mætti i Rúgbrauðsgerðina á stofnunfundinn.
\"Ég sagði það einhvern tíma að ég væri hætt að nenna að tala um Sigmund Davíð og hans uppátæki. Það verður bara einfaldlega að koma í ljós hver tilgangur Sigmundar Davíðs er með þetta\" sagði Eygló Harðardóttir í þættinum Víglínan sem Heimir Már Pétursson stýrir á Stöð 2.
Eygló sagði að engum sé bannað að tala innan Framsóknaflokksins. Það kom fram gagnrýni á ágætis hugveitur sagði Eygló sem hún á aðilda að og heitir sú hugveita Alþingi. Þar er lýðræðisleg umræða um margvísleg málefni.
Á Alþingi skiptir þó máli að menn leggi sig fram og vinni vel og mæti til þeirrar vinnu og taki þátt í þeirri lýðræðislegu vinnu sem þar fer fram sagði Eygló Harðardóttir.
rtá