Nemendur vítt og breitt um Bandaríkin gengu út úr kennslutímum í dag til að krefjast aðgerða og takmarkana á skotvopnaeign. Útgangan var skiplögð á landsvísu og gengu nemendur út kl. 10 að staðartíma í 17 mínútur í minningu þeirra 17 sem létu lífið í skólamorðunum í Flórída þann 14. febrúar sl.
Þúsundir nemenda söfnuðust líka saman á Pennsylvania Avenue framan við Hvíta húsið. Þau héldu á skiltum, hrópuðu slagorð gegn NRA, samtökum byssueigenda, og snéru á táknrænan hátt baki við forsetabyggingunni.
Síðar í þessum mánuði hafa samtök nemenda skipulagt almenna mótmælagöngu að þinghúsinu til að leggja áherslu á breytingara á byssulöggjöfinni.