Ugla Stefanía Jónsdóttir transkona og formaður Trans Ísland er með sterkar skoðanir á því hvernig fólk kemur fram við transfólk og hvers lags spurninga það spyr og viðraði þær í viðtali í þættinum KvennaráðI á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld. „Það virðist vera svo ótrúlega mikill fókus á kynfæri og líkama transfólks í stað þess að spá í það hvernig þetta er í samfélaginu. Eru miklir fordómar? Hvernig er lífið? Er þetta erfitt? Af því að á mörgum stöðum í heiminum er fólk myrt fyrir það að vera trans. Af hverju erum við ekki mikið frekar að spá í þetta heldur en hvort ég sé með typpi eða píku, hvaða máli skiptir það? Það kemur í raun engum við hvaða kynfæri ég er með nema sé að fara að sofa hjá þér,“ segir Ugla í þættinum sem brátt er innig hægt að nálgast að hluta og í heild sinni inni á hringbraut.is
Nema ég ætli að sofa hjá þér
Fleiri fréttir
Nýjast