Ákvörðun hefur verið tekin um að fjarlægja alfarið nektarmálverk eftir Gunnlaug Blöndal af veggjum Seðlabanka Íslands. Verkin hafa verið sett í geymslu um ókomna tíð eftir að gerð var athugasemd við hina ósæmilegu nekt.
Fréttablaðið fjallaði um það síðastliðið sumar að til skoðunar væri með hvaða hætti ætti að bregðast við kvörtun starfsmanns sem var misboðið af málverkunum sem innihalda nekt. Fréttin vakti verðskuldaða athygli og sitt sýndist hverjum. Nú liggur fyrir niðurstaða þessarar skoðunar og var hún að myndirnar skyldu fjúka.
„Ákveðið var að þessi málverk yrðu ekki á almennum vinnusvæðum eða á skrifstofum yfirmanna, þ.e. á þeim svæðum þar sem almennir starfsmenn vinna eða þurfa að leita með erindi,“ segir Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri Seðlabanka Íslands, í skriflegu svari við fyrirspurn blaðsins um lyktir málsins.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/frettir/nektarlist-i-selabanka-komi-fyrir-i-geymslu