Leikstjórinn Hrafn Gunnlaugsson vekur á því athygli í Facebook færslu að eitt þeirra umdeildu nektarmálverka eftir Gunnlaug Blöndal sem fjarlægt var af veggjum Seðlabanka Íslands og sett í geymslu nú á dögunum, má sjá í einu atriða í mynd hans, Opinberun Hannesar frá árinu 2003.
„Ég sé ekki betur en að Blöndalsmálverkið sem nú veldur svo miklu fjaðrafoki hafi hangið upp á vegg í þessu atriði í mynd minni Opinberun Hannesar,“ ritar leikstjórinn og er ljóst að leikstjóranum finnst í atriðinu hafa verið komið inná skoðanir sem urðu til þess að verkið var tekið niður.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/lifid/eitt-af-nektarmalverkunum-umdeildu-i-opinberun-hannesar