Íslendingum sem telja að koma erlendra ferðamanna hafi neikvæð áhrif fjölgar ört og þá einkum varðandi áhrif á náttúru landsins og miðborgina. Þetta kemur fram í könnun MMR á afstöðu Íslendinga til ferðamennsku. Flestir Íslendinga telja erlenda ferðamenn þó hafa jákvæð áhrif á efnahag landsins eða 89,7 prósent, sem og atvinnutækifæri eða rúmlega 78 prósent.
Um 64 prósent svarenda töldu að erlendir ferðamenn hefðu neikvæð áhrif á náttúru Íslands. Það er 13 prósentustiga aukning milli ára. Fólk búsett á landsbyggðinni var líklegra til að telja að erlendir ferðamenn hefðu jákvæð áhrif á náttúru Íslands, eða rúm 20 prósent heldur en þau sem búsett voru á höfuðborgarsvæðinu sem voru 13,6 prósent í niðurstöðum könnunarinnar.
Könnunin var framkvæmd dagana 22. til 29. ágúst 2016 og var fjöldi svarenda 949 einstaklingar, 18 ára og eldri.