Nei við hækkun á vaski

Morgunblaðið hefur upplýsingar um að þingmenn Sjálfstæðisflokksins munu ekki styðja óbreytta fjármálaáætlun fjármálaráðherra til næstu fimm ára.

Samkvæmt upplýsingum blaðsins eru þær skoðanir ráðandi innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins að ríkisstjórnin - einkum þó ríkisstjórnarflokkurinn Viðreisn þar sem fjármálaráðherra er formaður - hyggist einfaldlega fara of bratt í hækkanir á virðisaukaskatti á ferðaþjónustuna.

Fjármálaráðherrann sagði að hækkunin sé meðal annars til þess að vinna gegn risi krónunnar sem er síhækkandi vegna mikils innstreymis gjaldeyris frá ferðamönnum.

rtá

Nánar www.vb.is  www.ruv.is  www.mbl.is