Nei, segja stjórnmálin

Sú hugmynd að skipta Landsvirkjun upp og selja hana fær engar undirtektir hjá stjórnmmálamönnum, hvorki í stjórnarliðinu né hjá stjórnarandstöðunni.

Formaður atvinnuveganefndar, Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokki, og Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður atvinnuveganefndar og þingmaður Vinstri grænna, ræða hugmyndir um skipta Landsvirkjun upp og selja. Þau eru sammála um að ekki sé nokkur vilji til þess.

Þau mættu í umræðu í Þjóðbraut á Hringbraut þar sem fram kemur að þau hafa sjaldan eða aldrei verið nær hvort öðru í skoðunum, þó vissulega sé ágreiningur um eitt og annað.

Þjóðbraut í kvöld milli klukkan 21:00 og 22:00.