Nefnd fjármálaráðuneytis leggur til flatara skattkerfi

Nefnd um endurskoðun tekjuskatts, sem Axel Hall hagfræðingur stýrir fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins, leggur til flatara skattkerfi með færri skattþrepum. Lægsta skattprósentan mun lækka en persónuafsláttur hækka verði tillögurnar að veruleika, en þær eru byggðar á hugmyndum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Axel kynnti tillögurnar á fundi stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins 24. maí síðastliðinn og voru fundargögn birt á vef forsætisráðuneytisins í dag. Tillögur nefndarinnar snúa að því að auka jöfnuð án þess að draga úr hvata til vinnu. Samkvæmt þeim munu ráðstöfunartekjur fólks með allt að 3,6 milljónir króna í árstekjur aukast, en lækka lítillega hjá þeim sem eru með á milli 3,6 og 5 milljónir króna á ári. Ráðstöfunartekjur fólks með yfir 5 milljónir á ári munu einnig aukast.

Nánar á

https://stundin.is/grein/7284/nefnd-fjarmalaraduneytis-leggur-til-flatara-skattkerfi/