Breskir íhaldsmenn hafa geinilega haft mun betur á endasprettinum í þingkosningum sem fram fóru í Bretlandi í gær, en fyrir kjördag hafði höfuðandstæðingum þeirra verið spáð jafn miklu fylgi. Niðurstaðan virðist því áfall fyrir Ed Miliband, leiðtoga Verkamannaflokksins, sem líklega þarf að segja af sér.
Samkvæmt kosningatölum í morgun bætir Íhaldsflokkurinn við sig verulegu fylgi og nær hreinum meirihluta á breska þinginu með 329 þingsæti, en samkvæmt sömu tölum fær Verkamannaflokkurinn 235 þingmenn. Flestar skoðanakannanir fyrir kosningarnar bentu til þess að meginflokkarnir tveir, Íhaldsflokkur og Verkamannaflokkur yrðu hnífjafnir. Það gengur ekki eftir.
326 þingsæti þarf til ná meirihluta á breska þinginu og því mjög líklegt að Íhaldsflokkurinn sitji einn að stjórnvöldum á næsta kjörtímabili.