Nauðungarvistunum mun fækka með breyttum lögum

Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, lagði fram frumvarp í haust um breytingu á lögræðislögum með það fyrir augum að virða vilja hins lögræðissvipta áður en þörf til lögræðissviptingar skapast. Breytingin tekur til sjálfsákvörðunarréttar þeirra sem eru sviptir lögræði, þar sem slíkir einstaklingar munu fá tækifæri til að ráða eigin örlögum með svokallaðri fyrirframgefinni ákvörðunartöku.

Hanna Katrín er gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem hún ræðir frumvarpið og kosti þess. Hún mun mæla fyrir frumvarpinu á næstu dögum og eftir það fer það til nánari meðferðar í velferðarnefnd.

Fyrirframgefin ákvörðunartaka tekur til ákvarðana um framkvæmd og lok meðferðar, þá þjónustu, aðstoð, eða sérstakt úrræði sem hinn lögræðissvipti nýtur, meðferð fjármuna hans, umsjá barna sem hann fer einn með forræði yfir og aðrar ákvarðanir sem snúa að persónulegum högum hans þar til lögræðissvipting fellur úr gildi.

Hanna Katrín segir ýmsa kosti fólgna í þessari breytingu á lögræðislögum: „Það eru ýmsir ótvíræðir kostir fyrir utan það að ljá fólki rödd og draga úr ákveðnu valdaójafnvægi milli einstaklinga og fagfólks sem er að sinna því. Það hefur komið fram víða að það er ákveðið meðferðargildi fólgið í þessu vegna þess að það er valdeflandi fyrir fólk að huga að þessum þáttum, velta fyrir sér hvað það vildi láta gera öðruvísi, af hverju þessi meðferð er í gangi, af hverju er þetta að gerast og bregðast einhvern veginn við.“

„Svo er það síðast en ekki síst það sem rannsóknir erlendis hafa sýnt að þegar þetta liggur fyrir, klárt og skýrt, þá fækkar nauðungarvistunum,“ segir Hanna Katrín einnig.

Hanna Katrín segir lögin einnig mikilvæg fyrir fjölskyldur þeirra einstaklinga sem þurfi hugsanlega að svipta lögræði: „Það styrkir marga, þetta er oft mjög gott fyrir fjölskyldur sem sitja eftir og eru að taka einhverjar ákvarðanir út frá því sem þær halda að einstaklingurinn vilji. Mögulega lenda þær svo í að upplifa, þegar málin komast í jafnvægi, að þær hafi tekið ranga ákvörðun út frá óskum sjúklingsins. Þannig að þetta er mjög mikilvægt fyrir fjölskyldur svo hægt sé að komast hjá misskilningi og óþægilegum samskiptum.“

Nánar er rætt við Hönnu Katrínu í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.