Úttekt stendur yfir á stöðu mannréttindamála í aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. Tilgangurinn er að greina bæði það sem vel er gert og hitt sem betur má fara í mannréttindamálum aðildarríkjanna. Úttekt á þessum málum var síðast gerð á Íslandi árið 2011. Lögð er áhersla á að frjálsum félagasamtökum og öðrum hagsmunaaðilum gefist kostur á að koma sjónarmiðum á framfæri við mannréttindaráð SÞ.
Rótin, félag kvenna sem m.a. einbeitir sér að fíknvanda, er í hópi samtaka sem hafa sent SÞ umsögn. \"Rótin hefur fundið fyrir miklum stuðningi og meðbyr við málflutning sinn og það markmið félagsins að halda uppi umræðu um málefni fólks, sérstaklega kvenna, með fíknivanda hefur svo sannarlega náðst. Hins vegar finnst okkur hið opinbera heldur seint á sér að koma á úrbótum í málaflokknum og því var kærkomið tækifæri að koma sjónarmiðum okkar á framfæti við mannréttindaráðið,\" segir í tilkynningu frá Rótinni.
Jafnrétti kynjanna er ein af grunnstoðum mannréttinda, gilda SÞ og undirstaða sáttmála SÞ. Umsögn Rótarinnar leggur út frá alþjóðlegum skuldbindingum Íslendinga s.s. í mannréttindasáttmála SÞ, samningi SÞ um afnám allrar mismununar gagnvart konum og alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi. Einnig er vísað í íslensk lög s.s. jafnréttislög og lög um réttindi sjúklinga.
Vegna átaksins flutti Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, á umræðukvöldi Rótarinnar erindi sem nefndist „Nauðgun unglingsstúlkna. Niðurstöður rannsóknar á dómum Hæstaréttar“. Svala fjallaði um dóma er lúta að gerendum brotanna, þolendum, brotavettvangi, tengslum aðila, ástandi geranda og þolenda á verknaðarstundu o.fl. Einnig fjallaði hún um upplýsingar sem fram koma í málunum sem hvetja eða letja þolanda til að kæra.