Nauðgara nönnu vísað úr skólanum

Íslensk kona, Nanna Elísa Jakobsdóttir, sem stundar meistaranám við Columbia University í New York hefur fengið skólayfirvöld til að stöðva nám háskólastúdents við sama skóla vegna nauðgunar.

Nanna skrifar á facebook síðu sína að hún hafi loks upplifað réttlæti og sá sem nauðgaði henni muni ekki frá að klára nám sitt við háskólann eða eins og hún skrifar:

„Today I experienced justice. The person who raped me will not finish their degree at Columbia University“.

Hún segir hinar hugrökku konur á Íslandi hafi verið með sér í huganum alla þá átta mánuði sem málið fór í gegnum skjólastjórnina ytra og þakkar forsprökkum Druslugöngunnar. Hún segist hvetja allar konur til að kæra kynferðisofbeldi þótt hún viti að það muni stundum ekki færa þeim réttlæti. Hins vegar muni þær finna styrk og stolt.

Nanna sem starfaði fréttakona hjá 365, aðallega Fréttablaðinu hefur ekki langt að sækja eljuna því faðir hennar er Jakob Bjarnar Gretarsson blaðamaður til margra ára.

Hún segist skilja hvaða ótta fórnarlömbin horfast í augu við en það þurfi að berjast:

„Ég að það er fáránlegt að þurfa að sanna hvað gerðist þegar við getum upplifað það aftur og aftur. Ofbeldi er líka fáránlegt. Ég veit að þið eruð hræddar að takast á við hið óþekkta: Hvernig mun Hann bregðast við, hvað munu vinir hans segja, mun einhver trúa mér? Verður gert grin að mér þegar ég segi frá. Mun ég þegar frá líður vona að ég hefði betur ekki sagt neitt? Ég veit en allir verða að muna að ofbeldi er glæpur. Verðum að berjast”, skrifa Nanna Elísa.