Náttúran þarf milljarð árlega

Ragnheiður Elín Árnadóttur ferðamálaráðherra segir alls óvíst með hvaða hætti gjaldtöku af ferðamönnum verði háttað á næstu árum, en sem kunnugt er var hún gerð afturreka með náttúrupassa sinn á Alþingi.


"MIðað við reynsluna af vinnu síðustu mánaða við þetta mál sé ég ekki fram á að leggja það aftur fram í haust - eða yfirleitt," segir hún í Fréttablaðinu í dag, en hún hefur opnað fyrir þann möguleika að setja uppbyggingu ferðamannastaða einfaldlega á fjárlög. Náttúran þurfi líklega á milljarði að halda á ári til að byggja upp aðstöðu og viðhalda þeirri sem fyrir er - og í ljósi þeirra deilna sem verið hafa um leiðir til að taka gjald af þeim sem njóta náttúrunnar sé ef til vill affarasælast að fá fjármagnið í gegnum almenna skatta sem mynda ríkissjóð. Vandinn við þessa leið sé að þar með myndist ekki sjálfstæður tekjustofn til verkefnisins og það verði fyrir vikið háð fjárlagavinnu Alþingis á hverju ári.