National geographic velur íslenskt hótel

Hótel Húsafell er á nýjum lista yfir þá gististaði sem „National Geographic Unique Lodges of the World“ vill hafa í sínum röðum. Þetta kemur ftam á visir.is 

Hótelið er það fyrsta á Norðurlöndum sem hlotnast þessi heiður en hótelin á lista National Geographic eru sögð eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á sjálfbærni, góðru þjónustu við gesti og að vera umvafin stórbrotinni náttúru.

Þá eiga þau það jafnframt sammerkt að vera á „einstökum stöðum í heiminum þar sem gestir geta átt ógleymanlega upplifun í faðmi náttúru og sögu staðarins,“ eins og það er orðað í tilkynningu frá Hótel Húsafelli.

Haft er eftir hótelstjóranum Unnari Bergþórssyni að útnefningin sé mikill heiður fyrir Hótel Húsafell. „Við teljum okkur reka mjög gott hótel, opnuðum í júlí 2015 og höfum alltaf lagt áherslu á að gestir upplifi faglega þjónustu og þægindi á hótelinu okkar,“ er haft eftir Unnari.

Nánari upplýsingar má nálgast á vef National Geographic.