Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hleypti heldur betur illu blóði í fulltrúa meirihlutans í borginni og fylgismanna hans þegar hún greip til nasistalíkingar í ræðu í borgarstjórn í gær.
Stór orð féllu á aukafundi borgarstjórnar í gær þar sem umdeild tillaga um að sniðganga ísraelskar vörur var dregin til baka, en á fundinum var meðal annars kallað eftir afsögn borgarstjóra. Eins og fram kemur á vefmiðlinum Eyjunni í dag féllu stærstu orðin þó án efa úr munni Áslaugar sem sagði meirihlutann telja sig æðri lögunum í krafti þess að fólkið sem honum tilheyri sé „góða fólkið“:
\"Segjum að nasistar kæmust hér við völd og ákvæðu að setja einhvers konar bann á hluti, fara í gegnum innkaupastefnuna og segja: „Þetta hérna, þetta er einhvern vegin þannig að við teljum að hér sé verið að brjóta á fólki og lalalal…“ Þið eruð í rauninni að gera þetta, en þið teljið að þið séuð ekki nasistar af því að þið séuð góða fólkið,\" sagði Áslaug í umræðunni á fundinum.
.
Viðbrögðin við þessum ummælum hafa ekki látið á sér standa, eins og fram kemur í samantekt á Eyjunni, enda líkingar við nasista algjört tabú í stjórnmálaumræðu, bæði hér heima og erlendis. Þannig segir Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar á Facebook: \"Er þetta ekki aðeins of langt gengið? Mér finnst ekki alveg jafnvægi í þessum málflutningi. Nasistar, góða fólkið? Af því að þeim er ekki sama um undirokað fólk í Palestínu sem rekið er af heimilum sínum af landtökufólki og vill gera eitthvað í málinu? Væntanlega eru borgarfulltrúar Kaupmannahafnar undir sömu sök seldir.
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur, segir á sama vettvangi: \"Á Írlandi er „góða fólkið“ notað um álfa, en álfatrú á Írlandi er mjög lík þeirri sem sem hér var og eimir vonandi eftir af enn. Raunar voru álfarnir ekki beinlínis góðir – rændu til dæmis börnum og settu umskiptinga í staðinn. Og svona. En stundum finnst mér eins og við séum með eintóma umskiptinga í pólitíkinni.“
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, sem um árabil hefur verið viðloðandi Samfylkinguna, er sömuleiðis full vandlætingar: \"Ég skil ekki þegar fólk sem hefur unnið saman árum saman með einhverjum að viðkomandi hafi það í sér að fara upp í pontu og láti sér detta það í hug að líkja samstarfsmanni sínum við nasista – þó hann sé í öðrum flokki og jafnvel þó hann vilji sniðganga vörur frá Ísrael. Meira segja eldheitu ísraelsku vinir mínir hér sem eru oftast á öndverðu meiði við mig þegar kemur að málefnum ríkjanna tveggja, myndi aldrei detta slík samlíking í hug – aldrei.
Þá telur Hrannar Björn Arnarsson, fyrrum aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur, að ummælin kalli á afsökunarbeiðni, jafnvel afsögn: \"Ef ekki verður komin afsökunarbeiðni, eða afsagnarbréf frá Áslaug Friðriksdóttir á næstu 24 tímum er varla hægt að taka hana alvarlega lengur í pólitískri umræðu. Þvílíkt og annað eins!“
Áslaug svarar Hrannari og segist ekki hafa verið að kalla meirihlutann nasista, heldur hafi hún notað nasistana sem dæmi um af hverju virðing fyrir lögum og reglu skiptir máli: \"Lög eru ekki til þess að vera bara stíf og leiðinleg og koma í veg fyrir falleg mál. Þau eru öryggisventill – einmitt sett til að gera vondu fólki erfiðara fyrir ef það kemst til valda. Ef nasistar næðu meirihlutanum í borgarstjórn myndu sömu lög – og meirihlutinn nú ber enga virðingu fyrir og vill helst virða að vettugi – bjarga því að þeir gætu tekið allskonar ógeðfelldar ákvarðanir þrátt fyrir að hafa völdin. Það er mikil vanvirðing að bera ekki virðingu fyrir því hlutverki laga og reglna að halda að þau eigi alltaf bara við um ákvarðanir annarra, en ekki sinna eigin,\" er haft eftir Áslaugu í þessari samantekt á eyjan.is um málavöxtu.