Nasdaq í samstarf við hinsegin daga - fagna 20 ára afmæli

Í tilefni af 20 ára afmæli Hinsegin daga verða hátíðahöldin í ár enn veglegri en áður og standa til að mynda í 10 daga. Samstarfsverkefni Hinsegin daga og Nasdaq á Íslandi mun snúast um stöðu, réttindi og líðan hinsegin fólks í atvinnulífinu. Þau mál hafa lítið sem ekkert verið rædd eða skoðuð hér á landi ólíkt því sem hefur verið erlendis á undanförnum árum, meðal ananrs á Norðurlöndunum, þar sem fjölmargar rannsóknir hafa verið framkvæmdar um málefnið.

„Við erum gríðarlega stolt af þessu samstarfi með Hinsegin dögum á 20 ára afmæli þeirra.“ sagði Páll Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland. „Í þeim fyrirtækjum sem ná hvað bestum árangri er byggð upp menning gagnkvæmrar virðingar og jafnréttis, þar sem allt starfsfólk óháð kyni, kynvitund eða kynhneigð er verndað gegn mismunun; það upplifir sig öruggt í starfi, líður vel og finnur að það geti náð árangri innan fyrirtækisins. Fyrirtæki sem starfa á verðbréfamarkaði hafa verið ötul í vinnu að samfélagsábyrgð, þar sem jafnrétti og mannréttindi eru hluti af stefnu og mælikvörðum. Okkar markmið er að vekja atvinnulífið til vitundar um málefni hinsegin fólks á vinnumarkaði, að hvetja fyrirtæki til setja á dagskrá umræðu um stöðuna hjá sér og hvernig megi bæta hana.“

„Við fögnum því mjög að Nasdaq bætist nú í hóp fjölmargra stoltra samstarfsaðila Hinsegin daga.“, sagði Gunnlaugur Bragi Björnsson, formaður Hinsegin daga. „Það er mikið gleðiefni að Nasdaq hafi á undanförnum árum lagt áherslu á að skapa gott vinnuumhverfi fyrir hinsegin fólk og vilji hvetja önnur fyrirtæki til þess sama. Málefni hinsegin fólks á atvinnumarkaði er víðfeðmur málaflokkur sem við teljum nauðsynlegt að beina auknum sjónum að. Í því samhengi er það okkur afar dýrmætt að njóta stuðnings Nasdaq sem tengir saman mörg af stærstu og framsæknustu fyrirtækjum landsins. Ég trúi því af öllu hjarta að almennt vilji stjórnendur fyrirtækja skapa vinnuumhverfi þar sem vel er hlúð að öllu starfsfólki og allir viðskiptavinir eru þjónustaðir sem best en til þess getur þurft að skapa vinnustaðamenningu þar sem fjölbreytileikanum er fagnað, útlokandi orðræða er ekki viðhöfð og svo framvegis. Með samstarfi Hinsegin daga og Nasdaq viljum við opna þessa umræðu og gefa tóninn fyrir það sem koma skal sem vonandi hvetur vinnustaði landsins til enn betri verka.“

Nasdaq Iceland og Hinsegin dagar munu standa saman að tveimur viðburðum. Í upphafi Hinsegin daga, þann 8. ágúst verður viðskiptavinum og öðrum hagsmunaaðilum beggja aðila boðið að taka þátt í opnunarbjöllu í Kauphöllinni og síðan verður opinn hádegisverðarfundur á Þjóðminjasafninu 12. ágúst þar sem málefni hinsegin fólks í atvinnulífinu verða rædd frá ýmsum sjónarhornum. Aðalfyrirlesari á þeim fundi verður Richard Taylor, HR Talent Management hjá Nasdaq, sem mun ræða stefnu og skuldbindingar Nasdaq í mannauðsmálum.