New Horizon, geimfar Geimferðastofnunar Bandaríkjanna, NASA, flýgur nú í átt að dvergreikistjörnunni Plútó, en um borð er aska mannsins sem uppgötvaði hana fyrir 85 árum síðan.
Clyde Tombaugh er maðurinn sem er talinn hafa uppgötvað Plútó árið 1930. Þá var hann einungis 24 ára gamall og starfaði við Stjörnuathugunarstöðina í Arizona við að skoða milljónir mynda af stjörnum, með það eitt að markmiði að finna reikistjörnu handan Neptúnusar.
Tombaugh lést árið 1997, 90 ára að aldri en níu árum síðar fór geimfarið New Horizon af stað í leiðangur að Plútó með hluta af ösku hans. Níu árum síðar nálgast geimfarið dvergreikistjörnuna óðfluga og er áætlað að vera hvað næst henni á morgun, þriðjudag. CNN hefur það eftir dóttur Tombaugh að það hafi alltaf verið draumur föður hennar að fá að sjá Plútó sem hann upppgötvaði fyrir svo löngu síðan með eigin augun. Það hafi þó aldrei komið til þess, og því má segja að ósk hans verði að einhverju leyti uppfyllt á morgun.